Fotbolti.net
18.06.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Clint Hill í Rangers (Staðfest)

Clint Hill með hendurnar á lofti

Clint Hill með hendurnar á lofti

Canon

Mynd: Getty Images

Rangers í Skotlandi hefur fengið reynsluboltann Clint Hill í sínar raðir.
Hill var látinn fara frá QPR í síðasta mánuði og hefur nú skrifað undir eins árs samning við Rangers.

Hill, sem er orðinn 37 ára gamall, lék með QPR í sex ár eða frá 2010 til 2016.

Nokkrir stuðninigsmenn hafa lýst áhyggjum af þessum kaupum, en margir telja Hill orðinn of gamlan. Hann segist þó ætla að gefa allt sem hann getur fyrir Rangers.

„Ég er 37 ára gamall, ég er ekki stórt nafn miðað við þá frábæru leikmenn sem hafa spilað fyrir þetta félag, en ég mun gefa allt sem ég á,\" sagði Hill á flugvellinum í Glasgow.

Rangers endurheimti sæti sitt í skosku úrvalsdeildinni á dögunum eftir að hafa verið dæmt niður í D-deild árið 2012 eftir gjaldþrot.

Liðið ætlar stóra hluti á komandi tímabili, en auk Hill hafa menn eins og Joey Barton samið við félagið. Hill og Barton léku einmitt saman hjá QPR á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.