Miðjumaðurinn Jobe Bellingham gekk í raðir Borussia Dortmund á dögunum eftir að hann hjálpaði Sunderland að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Dortmund greiðir 27,8 milljónir punda fyrir Jobe og getur sú upphæð hækkað upp í 32 milljónir punda sem gerir hann að metsölu fyrir Sunderland.
Dortmund greiðir 27,8 milljónir punda fyrir Jobe og getur sú upphæð hækkað upp í 32 milljónir punda sem gerir hann að metsölu fyrir Sunderland.
Miðjumaðurinn skrifar undir fimm ára samning og mun hann spila í treyju númer 77 á HM félagsliða í sumar.
Það vekur hins vegar athygli að Jobe er ekki með fjölskyldunafnið á bakinu, en af hverju er það svo?
Jobe hefur verið með fyrra nafn sitt á bakinu frá því hann gekk í raðir Sunderland en Tony Mowbray, fyrrum stjóri Sunderland, sagði frá því að það væri vegna þess að hann vildi ekki lifa á nafni bróður síns og hans afrekum. Hann vildi búa til sitt eigið nafn.
„Hann vill vera sá fótboltamaður sem hann er og sýna fólki hvað hann getur gert," sagði Mowbray.
Jobe er núna að fylgja í fótspor bróður síns með skiptunum til Dortmund því Jude, eldri bróðir hans, lék þar í nokkur ár áður en hann fór til Real Madrid þar sem hann er í dag.
Athugasemdir