Fotbolti.net
18.06.25 - 11:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Selma Dögg og Sölvi eiga von á barni

Selma Dögg Björgvinsdóttir.

Selma Dögg Björgvinsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Selma Dögg Björgvinsdóttir, fyrirliði Víkinga, verður ekki meira með liðinu í sumar. Hún og Sölvi Geir Ottesen, þjálfari karlaliðs Víkinga, eiga von á barni en þau greina frá þessu á samfélagsmiðlum.
Selma er að fara að eignast sitt þriðja barn en hún varð bikarmeistari með Víkingi ári eftir að hún eignaðist sitt annað barn.

„Ég er búin að eignast tvö börn og átti barn fyrir ári síðan. Það er ekki hægt að lýsa þessu, að koma til baka eftir barnsburð og verða bikarmeistari strax árið eftir. Ég get verið stolt af mér og ég er sömuleiðis stolt af öllum fótboltamömmunum þarna úti. Þetta er sturlað," sagði Selma við Fótbolta.net eftir að hún varð bikarmeistari með Víkingum árið 2023.

Selma, sem er fædd árið 1997, hefur komið við sögu í þremur leikjum í Bestu deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.