Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. júlí 2021 13:58
Brynjar Ingi Erluson
Æfingaleikur: Man Utd vann fyrsta leikinn gegn lærisveinum Rooney
Tahith Chong skoraði fyrra mark Man Utd en hér fagnar hann ásamt Juan Mata
Tahith Chong skoraði fyrra mark Man Utd en hér fagnar hann ásamt Juan Mata
Mynd: Heimasíða Man Utd
Derby 1 - 2 Man Utd
0-1 Tahith Chong ('17 )
0-2 Facundo Pellistri ('59 )
1-2 Colim Kazim-Richards ('70 )

Manchester United vann fyrsta æfingaleik sinn á undirbúningstímabilinu í dag er liðið lagði Derby County að velli, 2-1, á Pride Park-leikvanginum.

Hollenski sóknarmaðurinn Tahith Chong kom United yfir eftir að hafa unnið boltann af varnarmanni Derby, lyft honum yfir markvörðinn og skorað í netið.

Úrúgvæska undrabarnið Facundo Pellistri bætti við öðru marki eftir klukkutímaleik áður en Colim Kazim-Richards gerði eitt mark fyrir Derby rúmum tíu mínútum síðar.

Byrjunarlið Man Utd: Heaton; Wan-Bissaka, Tuanzebe, Menji, Williams; Levitt, Garner; Elanga, Mata, Chong; Greenwood.
Athugasemdir
banner
banner
banner