18.07.21 - 20:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gabriel Heinze rekinn frá Atlanta (Staðfest)

Heinze er fyrrum leikmaður Man Utd.

Mynd: Getty Images

Heinze er fyrrum leikmaður Man Utd.

Mynd: Getty Images
Atlanta hefur ákveðið að reka Gabriel Heinze úr starfi þjálfara. Þetta var tilkynnt í dag.
Heinze átti flottan feril sem leikmaður en hann spilaði við góðan orðstír hjá félögum á borð við Paris Saint-Germain, Manchester United, Real Madrid, Marseille og Roma.
Hann lék þá 72 landsleiki fyrir argentínska landsliðið en eftir leikmannaferilinn sneri hann sér að þjálfun.
Heinze entist aðeins í rúma þrjá mánuði í fyrsta starfi sínu sem þjálfari Godoy Cruz í heimalandinu en næst tók hann við Argentinos Juniors og kom hann liðinu upp um deild í fyrstu tilraun. Hann þjálfaði þá Velez áður en hann tók við Atlanta í desember síðastliðnum.
Árangurinn hefur ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Hann stýrði liðinu til sigurs í tveimur leikjum af 13.
Ákvörðunin um brottreksturinn er tekin nokkrum dögum eftir að Heinze tjáði stjörnuframherjanum Josef Martinez það að hann myndi ekki æfa áfram með liðinu.
„Það er ekkert vandamál með líkamlegt stand hans. Ég tók ákvörðun um að hann myndi æfa fjarri liðinu," sagði Heinze við fjölmiðlamenn í síðustu viku en núna er hann búinn að missa starf sitt í Bandaríkjunum.

Announce Heimir Hallgrímsson. https://t.co/ALMSqqXexH
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) July 18, 2021