Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers

Mynd: EPA

Mynd: EPA
The Athletic greinir frá því að Aston Villa sé búið að samþykkja 117 milljón punda kauptilboð frá Chelsea fyrir sóknartengiliðinn fjölhæfa Morgan Rogers.

TENGT EFNI
Rogers næstur inn hjá Arsenal
Rogers hefur verið sterklega orðaður við Arsenal en óljóst er hvort Englandsmeistararnir séu reiðubúnir til að jafna himinhátt tilboð Chelsea.
Gangi félagaskiptin í gegn verður Rogers dýrasti leikmaður í sögu enska boltans. Manchester City borgaði 116 milljónir punda fyrir Elliot Anderson og myndi Chelsea endurheimta Englandsmetið með kaupum á Rogers. Enzo Fernández, miðjumaður Chelsea, var dýrasti leikmaður í sögu deildarinnar fyrir sumarið.
Rogers er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir sex ára samningi við Chelsea með möguleika á auka ári. Hann er bókaður í læknisskoðun strax eftir helgi þegar England hefur lokið keppni á heimsmeistaramótinu.
Rogers er 23 ára gamall og kom með beinum hætti að 26 mörkum í 55 leikjum með Aston Villa á síðustu leiktíð.