Sölvi svekktur: Ósjálfrátt tilfinningaleg þynnka


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg spilaði sinn fyrsta leik í rúmt ár

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur Diljan líka mættur til baka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við þurfum að finna einhvern hvata til þess að við mætum almennilega í þessa (deildar)leiki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri fór meiddur af velli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tapið er það fyrsta í deildinni hjá Víkingi frá því í ágúst á síðasta ári. Víkingur kom í leikinn á Akureyri í dag eftir að hafa slegið ungversku meistarana í Györ út í forkeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudag.
Sölvi gerði sjö breytingar á byrjunarliði sínu frá Evrópuleiknum. Gerðir þú mistök í liðsvali?
„Það er alveg hægt að bera rök fyrir því að ég hefði átt að gera hlutina öðruvísi fyrst við töpuðum. Við vorum meira með boltann, sköpuðum fleiri færi og vorum með tök á leiknum. Það voru tæknifeilar sem gerðu það að verkum að við töpuðum leiknum. Ég tek ábyrgð á því hvaða liði ég stilli upp, ég taldi þetta vera besta liðið fyrir þennan leik. Ég þarf sjálfur að læra af þessu."
„Það er mjög leiðinleg tilfinning að tapa, við viljum vinna alla leiki og leggjum hart að okkur til þess að vera í eins góðu standi og hægt er."
Hvernig er svo að fara úr deildinni og aftur í Evrópugírinn?
„Það er erfiðara að skipta úr Evrópu og í Bestu deildina, það eru meiri tilfinningar og meira undir. En við þurfum að læra af því, viljum alltaf spila okkar fótbolta sama hver andstæðingurinn er. Ég veit að það er munur og þess vegna segi ég að við þurfum að læra. Við þurfum að finna einhvern hvata til þess að við mætum almennilega í þessa (deildar)leiki. Næsti leikur er stórleikur þannig ég hef engar áhyggjur af því að spennustigið verði ekki rétt í honum."
Endað á mjög jákvæðum nótum
Daði Berg Jónsson spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik í rúmt ár í dag. Sölvi var spurður út í Daða í lok viðtalsins.
„Það er geggjað, geggjað að sjá hann kominn aftur inn. Ég hef fylgst með honum í gegnum þessi meiðsli og á tímabili var hann helvíti þungur að koma inn á skrifstofu. Maður sá að honum leið ekki vel. Hann er búinn að vera jákvæður, allavega eins og hægt er í gegnum þetta. Hann er búinn að vinna hart að því að koma til baka og það er mjög ánægjulegt að sjá hann. Hann brosir allan daginn og talar mest af öllum. Maður sér á honum að hann er mjög glaður að geta farið að spila fótbolta aftur og við Víkingar fögnum því. Það er líka gott að sjá Stígsa (Stíg Diljan Þórðarson) líka koma aftur inn á völlinn. Hann er búinn að vera í leiðindameiðslum og frábært að fá þá til baka, þeir styrkja hópinn," segir Sölvi.
Það komust þó ekki allir Víkingar heilir frá leiknum í dag því Róbert Orri Þorkelsson meiddist á ökkla.
Viðtalið er talsvert lengra og má sjá það í heild sinni í spilaranum efst

Daði Berg spilaði sinn fyrsta leik í rúmt ár

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur Diljan líka mættur til baka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við þurfum að finna einhvern hvata til þess að við mætum almennilega í þessa (deildar)leiki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri fór meiddur af velli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



