Fotbolti.net
18.07.26 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Brandt á æfingasvæði Leeds

Brandt á æfingasvæði Leeds
Canon

Mynd: EPA

Jürgen Brandt, faðir og umboðsmaður Julian Brandt, var myndaður á æfingasvæði Leeds United í gær.
Leeds að landa stórum bita
TENGT EFNI

Leeds að landa stórum bita

Brandt er í viðræðum við Leeds um félagaskipti sonar síns sem er án félags eftir að hafa leikið fyrir Bayer Leverkusen og Borussia Dortmund síðustu tólf ár.

Brandt er 30 ára sóknartengiliður með 48 landsleiki að baki fyrir Þýskaland, en hann kom með beinum hætti að 15 mörkum í 41 með Dortmund á síðustu leiktíð.

Leeds er þó ekki eina félagið sem vill fá Brandt í sínar raðir þar sem ítölsku stórveldin Roma og Juventus eru einnig áhguasöm.

Sky á Ítalíu segir þó að Brandt hafi meiri áhuga á ensku úrvalsdeildinni heldur en Serie A á Ítalíu. Það er samt ekki útilokað að leikmaðurinn velji Roma eða Juve til að spila í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Brandt á æfingasvæði Leeds
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.