Fotbolti.net
18.07.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Reynir Man Utd við franska landsliðsmanninn? - Sagður falur fyrir 25 milljónir

Reynir Man Utd við franska landsliðsmanninn? - Sagður falur fyrir 25 milljónir
Canon

Mynd: EPA

Man Utd hefur áhuga á Frakkanum Jean-Philippe Mateta, framherja Crystal Palace.

Þessi 29 ára gamli leikmaður var nálægt því að yfirgefa Palace í janúar eftir að samkomulag við Juventus virtist í höfn en hann var áfram hjá enska félaginu og hjálpaði liðinu að vinna Sambandsdeildina.
Mateta á ár eftir af samningi sínum og félagaskiptasérfræðingurinn Rudy Galetti segir að Crystal Palace sé tilbúið að samþykkja 25 milljón punda tilboð.

Man Utd mun fá samkeppni frá Atletico Madrid og Juventus hefur einnig ennþá áhuga á Frakkanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.