Julián Alvarez er ekki til sölu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miguel Ángel Gil, framkvæmdastjóri Atlético Madrid, segir að argentínski framherjinn Julián Alvarez sé ekki til sölu þrátt fyrir mikinn áhuga frá stórveldunum Real Madrid og Barcelona.

TENGT EFNI
Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari
Greint hefur verið frá því að Atlético er búið að hafna 130 og 150 milljón evra tilboðum frá risaveldunum og segir Gil að félagið myndi ekki einu sinni samþykkja 200 milljónir fyrir leikmanninn.
„Staða okkar er skýr og við erum búnir að vera heiðarlegir við leikmanninn, stuðningsmennina og forseta Barcelona (Joan Laporta)," sagði Gil.
„Ég hef engar efasemdir um að Atlético sé rétta félagsliðið fyrir Julián og að Julián sé rétti framherjinn fyrir Atlético. Við viljum halda honum.
„Ég heyrði nýverið ummæli frá forseta Barcelona að tilboðið sem hann hefði lagt fram í Alvarez myndi ekki vara að eilífu. En við viljum ekki selja hann. Við samþykkjum ekki 100 milljónir fyrir Alvarez, ekki 150 milljónir og ekki 200 milljónir.
„Hann er með 500 milljón evra riftunarákvæði í samningnum."
Alvarez er með fjögur ár eftir af samningi sínum við Atlético.

Laporta staðfesti Adeyemi - Vonast til að fá Alvarez

Mynd: EPA

Mynd: EPA