Fotbolti.net
18.08.15 - 21:10
Elvar Geir Magnússon

Ólafur Karl Finsen í Sandnes Ulf (Staðfest)

Ólafur Karl Finsen í Sandnes Ulf (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Karl Finsen hefur verið lánaður frá Stjörnunni til Sandnes Ulf í Noregi út tímabilið. Norska félagið á möguleika á því að kaupa hann eftir að lánssamningurinn rennur út.
Tom Rune Espedal hjá Sandnes Ulf segir að mikil ánægja sé innan félagsins með að fá Ólaf sem spilaði lykilhlutverk og var einn besti leikmaður Íslandsmótsins þegar Stjarnan stóð uppi sem meistari.

Sandnes Ulf er í öðru sæti norsku B-deildarinnar með 35 stig, fimm stigum frá toppliði Sogndal, og er því í harðri baráttu um að endurheimta sæti sitt í úrvalsdeildinni.

Ingvar Jónsson leikur með liðinu á lánssamningi frá Start en Hannes Þór Halldórsson varði mark liðsins í fyrra.

Ólafur Karl Finsen skoraði þrjú mörk í 16 leikjum fyrir Stjörnuna á yfirstandandi leiktíð í Pepsi-deildinni en liðið hefur leikið langt undir væntingum og er í sjöunda sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.