18.08.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Cancelo lentur á Spáni: Barca eða ekki neitt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Joao Cancelo er lentur í Barcelona þar sem hann er að ganga til liðs við Spánarmeistarana á frjálsri sölu eftir að hafa gert flotta hluti á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Fær leyfi til að skipta til Barcelona
Cancelo kemur úr röðum Al-Hilal eftir rifrildi við stjórnendur. Sádi-arabíska stórveldið keypti bakvörðinn úr röðum Manchester City fyrir tveimur árum en afskráði hann úr leikmannahópi liðsins í deildinni vegna takmarkana á erlendum leikmönnum.
Cancelo tók ekki vel í að vera skráður úr hópnum svo hann krafðist þess að fara til Barcelona á lánssamningi í síðasta janúarglugga. Í sumar krafðist hann þess svo að fá samningi sínum við Al-Hilal rift svo hann gæti haldið áfram að spila fyrir Barca.
„Deco vissi hvernig mér leið. Hann vissi að ég myndi annað hvort koma til Barcelona í sumar eða eyða heilu ári í Arabíu á fullum launum án þess að spila fótbolta. Þetta var Barca eða ekki neitt," sagði Cancelo þegar hann lenti í Barcelona.
„Við erum með topp leikmannahóp og ég er nákvæmlega þar sem ég vil vera. Ég mætti viku fyrr til æfinga til að vera tilbúinn fyrir næstu leiktíð með Barca."
Cancelo er 32 ára gamall og hefur meðal annars spilað fyrir Inter, Manchester City og FC Bayern á ferlinum, auk þess að eiga 73 landsleiki að baki fyrir Portúgal.