Fotbolti.net
18.08.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Delap alltof dýr - Snúa sér að Moise Kean

Delap alltof dýr - Snúa sér að Moise Kean
Canon

Mynd: EPA

Como reyndist spútnik lið síðustu leiktíðar í ítalska boltanum og tryggði sér óvænt þátttökurétt í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Fabregas á eftir öðrum leikmanni Chelsea
TENGT EFNI

Fabregas á eftir öðrum leikmanni Chelsea

Cesc Fábregas þjálfari hefur fengið mikið lof fyrir starf sitt í Como og vill hann ólmur fá nýjan sóknarmann til félagsins. Hann er ekki sáttur með framlag samlanda síns Álvaro Morata sem átti algjört martraðatímabil í fyrra, en Anastasios Douvikas steig upp í staðinn og reyndist gríðarlega mikilvægur.

Como hefur verið sterklega orðað við Liam Delap á síðustu dögum en félagið er ekki reiðubúið til að borga verðmiðann sem Chelsea hefur sett á framherjann. Úrvalsdeildarfélagið vill fá 50 milljónir punda fyrir Delap á meðan Moise Kean, framherji Fiorentina og ítalska landsliðsins, gæti verið falur fyrir talsvert lægri upphæð.

Como er búið að leggja fram 5 milljón evra lánstilboð í Kean, með kaupskyldu sem hljóðar upp á 25 milljónir til viðbótar. Líklegt er að Fiorentina fari fram á hærra kaupverð.
Delap alltof dýr - Snúa sér að Moise Kean
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.