Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, er hættur á Twitter eftir að hafa fengið ljót skilaboð eftir 2-0 tapið gegn Napoli í gær.
Robertson átti erfitt kvöld á Ítalíu en hann fékk á sig vítaspyrnu þegar átta mínútur lifðu leiks.
Robertson átti erfitt kvöld á Ítalíu en hann fékk á sig vítaspyrnu þegar átta mínútur lifðu leiks.
Eftir leikinn rigndi ljótum skilaboðum yfir Robertson á Twitter.
Einn aðili sagði Robertson að hafa mök við geit og annar sagði honum að læra að tækla.
Robertson fékk nóg og lokaði í kjölfarið Twitter reikningi sínum.
Athugasemdir