Fotbolti.net
18.09.20 - 14:44
Magnús Már Einarsson

Liverpool á eftir Jota

Liverpool á eftir Jota
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur áhuga á að fá kantmanninn Diogo Jota í sínar raðir frá Wolves.
Jota er 23 ára gamall Portúgali en hann hefur verið í stóru hlutverki hjá Wolves undanfarin tvö tímabil.

Liverpool er að selja varnarmanninn unga Ki-Jana Hoever til Wolves og Jota gæti á móti farið til ensku meistarana.

Sagt er að Wolves borgi tíu milljónir punda fyrir hinn 18 ára gamla Hoever en ekki hefur verið talað um hvaða verðmiði gæti verið á Jota fyrir Liverpool.

Liverpool er að ganga frá kaupum á Thiago Alcantara frá Bayern Munchen og nú gæti Jota einnig komið til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.