Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 18. september 2021 08:00
Victor Pálsson
Everton fær gríðarlega efnilegan leikmann
Mynd: EPA
Everton er búið að festa kaup á einum efnilegasta 16 ára leikmanni Englands samkvæmt the Liverpool Echo í dag.

Leikmaðurinn umtalaði ber nafnið Francis Okoronkwo og kemur á Goodison Park frá Sunderland.

Everton borgar eina milljón punda fyrir þennan efnilega strák sem er talinn eiga gríðarlega framtíð fyrir sér.

Samkvæmt Echo hefur Everton fylgst með gangi mála hjá Okoronkwo undanfarið ár og hefur nú fest kaup á leikmanninum.

Okoronkwo hefur verið líkt við Dominic Calvert-Lewin sem er nú aðal framherji Everton og þeirra helsta vopn í sókninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner