Fotbolti.net
18.09.21 - 18:02
Brynjar Óli Ágústsson

Jón Stefán: Félag eins og Þór á bara að vera ofar í deildinni.

Auglýsing
Jón Stefán: Félag eins og Þór á bara að vera ofar í deildinni.
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
<i>„Ég var nokkuð ánægður með liðið.''</i> segir Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Þórs, eftir 2-3 sigur gegn Þrótt R. í loka umferð tímabilsins í Lengjudeildinni.
„Mér fannst við byrja rólega svo fannst mér við frábærir á köflum í seinni hálfleik. Við nutum þess í dag að spila fótbolta, sem hefur vantað aðeins.''

Jón Stefán var spurður hvort hann væri sáttur með 9. sæti í deildinni.

„Nei, ég væri nú að ljúga því ef ég væri sáttur með það. Við ætluðum okkar miklu stærri hluti en það og félag eins og Þór á bara að vera ofar í deildinni.''

„Markmiðið hjá okkur er að vera í efstu deild. Við erum búnir að vera nógu lengi í þessari deild.''

Spurt var Jón Stefán um hvort hann hafi einhvern áhuga á að taka við sem aðalþjálfari Þór fyrir næsta tímabil.

„Ég væri að ljúga ef ég hefði ekki áhuga á því, en ég er íþróttafulltrúi hjá félaginu og ég sé ekki að það gangi upp. Ekki nema ef ég myndi hætta hinu og ég er í góðu starfi núna.''

Hægt er að horfa á allt viðtalið í heild sinni fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.