28.11.26 - 12:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikir: 15 ára skoraði fyrir Aftureldingu

Ari Hrafn á skotskónum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Róbert Elli.

Mynd: ÍA

Í gær fórur fram tveir æfingaleikir sem Fótbolti.net hefur fengið upplýsingar um.
Haukar, sem unnu 2. deild í sumar, tóku á móti Lengudeildarmeisturum Aftureldingar í Hafnarfirði og enduðu leikar með 1-1 jafntefli.
Hinn 15 ára Ari Hrafn Haraldsson kom Aftureldingu yfir í fyrri hálfleik.
Það var svo Arnar Númi Gíslason (2004) sem jafnaði fyrir Hauka í seinni hálfleik.
Ari Hrafn er unglingalandsliðsmaður og Númi sneri aftur í Hauka frá Fylki í sumarglugganum.
Kristján Flóki Finnbogason kom inn á í seinni hálfleik og spilaði sinn fyrsta leik í Haukatreyjunni en hann kemur frá grönnunum í FH.

Í Akraneshöllinni tók svo Kári, venslalið ÍA, á móti HK. Kári endaði i 3. sæti í 2. deild í sumar en HK endaði í 4. sæti Lengjudeildar.
Kári vann leikinn, 3-2 lokatölur. Jóhannes Breki Harðarson (2004), Gabríel Þór Þórðarson (2004) og Róbert Elli Vífilsson (2009) skoruðu mörk Kára.
Það var markakóngur Lengjudeildarinnar, Dominik Radic (1996), sem skoraði bæði mörk HK í leiknum.
Hann hefur verið skotmark Keflavíkur nú í vetur.
Í kvöld, klukkan 18:30 í Egilshöll, mætast Fjölnir (2. deild) og Leiknir (Lengjudeild) í æfingaleik.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected].