Fotbolti.net
28.11.26 - 12:43
Brynjar Ingi Erluson

Sigursælasta liðið fallið niður um deild

Sigursælasta liðið fallið niður um deild
Canon

Mynd: EPA

BATE Borisov, sigursælasta félag í sögu hvítrússnesks fótbolta, er fallið niður í B-deildina.
BATE hefur verið eitt mesta stórveldi hvítrússnesks fótbolta á þessari öld og unnið alls fimmtán meistaratitla, fleiri en nokkurt annað félag í landinu.

Það var mikið áfall fyrir félagið þegar forseti þess, Anatoliy Kapskiy, lést árið 2018, en undir hans stjórn hafði BATE unnið þrettán meistaratitla.

Síðustu ár hafa hins vegar verið erfið. Félagið hefur glímt við mikinn fjárhagsvanda og þurft að reiða sig í auknum mæli á unga og efnilega leikmenn. Nú er svo komið að BATE er fallið niður um deild eftir 1-1 jafntefli í lokaumferðinni.

Fall þessa fyrrum stórveldis er með ólíkindum og óvíst hvað tekur við hjá félaginu.

Willum Þór Willumsson lék með BATE frá 2019 til 2022 áður en hann gekk til liðs við Go Ahead Eagles í Hollandi.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.