28.11.26 - 12:52
Brynjar Ingi Erluson
U19 kvenna: Tap gegn heimakonum í fyrsta leik

Mynd: UEFA

Mynd: UEFA

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði 3-1 fyrir Króatíu í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins, sem fer fram í Króatíu, í dag.
Arnfríður Auður Arnarsdóttir skoraði eina mark íslenska liðsins þegar hún jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks.
Heimakonur skoruðu hins vegar tvö mörk í síðari hálfleik og tryggðu sér sigurinn, en Valentina Akrap og Lana Popic voru þar að verki.
Ísland mætir næst Belgíu á þriðjudag áður en liðið etur kappi við Frakkland á föstudag.
Liðin leika í A-deild undankeppninnar, en liðið sem endar í neðsta sæti riðilsins fellur niður í B-deild fyrir aðra umferðina.