18.10.26 - 09:00
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Eru álög á Aroni og markametinu?

Aron Sigurðarson skoraði 20 mörk í fyrstu 20 leikjum KR en hefur ekki bætt við síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson fyrirliði KR-inga bíður enn eftir því að jafna eða slá markamet efstu deildar karla. Hann lék sinn sjötta leik í röð í gær án þess að skora mark þegar KR lagði Keflavík að velli, 3-2, suður með sjó í 26. og næstsíðustu umferð deildarinnar.
Aron bætist því hóp þeirra íslensku knattspyrnumanna sem komast í tæri við markamet deildarinnar en lenda í vandræðum á lokasprettinum. Hann er alls ekki sá fyrsti sem lendir í þessari stöðu en er orðinn sá leikmaður sem hefur þurft að bíða lengst eftir að hafa komist svona nálægt settu marki. Þegar langt var liðið á tímabilið virtist ekki vera spurning hvort Aron myndi slá metið, heldur hvenær það myndi gerast og hversu rækilega það yrði slegið.
Aron virtist reyndar hafa bundið endi á markaþurrðina þegar KR lagði Fram að velli í Úlfarsárdal í 25. umferðinni, 2-1. Fyrra mark KR í leiknum var skráð á hann, og þar með hefði hann verið búinn að jafna metið sem KR-ingurinn Benoný Breki Andrésson setti árið 2024 með því að skora 21 mark í deildinni. Benoný varð þá sá fyrsti í sögunni til að rjúfa 20 marka múrinn sem lengi vel virtist óyfirstíganleg hindrun.
En KSÍ hefur síðan úrskurðað að Aron hafi alls ekki skorað umrætt mark, heldur hafi það verið sjálfsmark Framarans Kennie Choparts. Boltinn hefði verið á leið framhjá markinu eftir skot Arons þegar hann breytti stefnu af Framaranum.
Eru virkilega álög á þeim sem reyna við markametið, eða að bæta það? Við skulum skoða betur hvað þeir leikmenn sem hafa jafnað metið eða komist í tæri við að bæta það hafa gengið í gegnum á hinum ýmsu tímum í sögunni, allt frá því Pétur Pétursson skoraði fyrstur 19 mörk árið 1978. Miðað við þessa atburðarás mætti ætla að einhvers staðar sé togað í spotta bak við tjöldin!
Neðst í greininni er svo að finna lista yfir alla þá sem hafa orðið markakóngar efstu deildar karla frá árinu 1959: