Fotbolti.net
18.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Nasistasöngvar Hajduk til rannsóknar hjá lögreglu

Nasistasöngvar Hajduk til rannsóknar hjá lögreglu
Canon

Mynd: EPA

Lögreglan í Króatíu er með meinta nasistasöngva stuðningsmanna Hajduk Split til rannsóknar. Söngvarnir beindust gegn gyðingum og gengu svo langt að hylla Adolf Hitler. Þá var einnig sungið um útrýmingarbúðirnar frægu í Auschwitz.
Söngvarnir áttu sér stað fyrir heimaleik Hajduk gegn Ajax í Sambandsdeildinni í miðri viku, en Ajax er þekkt fyrir að njóta mikils stuðnings frá gyðingasamfélaginu.

Stór hluti stuðningsmanna tók þátt í söngvunum og sérstakri göngu fyrir leik, þar sem líkkista merkt Ajax var sett ofan á gulan bíl sem leiddi gönguna.

Ríkisstjórnin í Króatíu hefur fordæmt hegðun stuðningsmanna Hajduk og er lögreglan í Split búin að handtaka nokkra af forsprökkum göngunnar.

Hajduk vann 2-1 gegn Ajax en dómarinn þurfti að stöðva leikinn í rúmar tíu mínútur vegna blysa og óláta frá áhorfendapöllunum.

Hajduk Split hefur beðist afsökunar á hegðun stuðningsmanna án þess þó að taka sérstaklega fram hvað átti sér stað.

„Þegar atvik eins og þetta í dag eiga sér stað ber okkur skylda að biðjast afsökunar. Við viljum biðja stuðningsmenn sem mættu á völlinn til að hvetja liðið áfram í sögulegri endurkomu í Evrópukeppni eftir 16 ára fjarveru afsökunar. Við viljum líka biðja skipuleggjendur keppninnar og stjórnendur og leikmenn Ajax afsökunar fyrir að hafa orðið vitni að atvikum sem við viljum ekki að Evrópa muni eftir okkur fyrir," segir meðal annars í yfirlýsingu króatíska félagsins.

Evrópska fótboltasambandið UEFA getur ekkert gert í atvikum sem eiga sér stað utan leikvanga og getur því ekki refsað Hajduk Split fyrir göngu stuðningsmanna félagsins. Líklegt er að félaginu verði þó refsað fyrir hegðun stuðningsmanna á leikvanginum.
Nasistasöngvar Hajduk til rannsóknar hjá lögreglu
Canon

Mynd: EPA

Nasistasöngvar Hajduk til rannsóknar hjá lögreglu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.