Fotbolti.net
18.11.14 - 20:33
Alexander Freyr Tamimi

Arnór Eyvar í Fjölni (Staðfest)

Arnór Eyvar er genginn til liðs við Fjölni.

Arnór Eyvar er genginn til liðs við Fjölni.

Canon

Mynd: Aðsend

Varnarmaðurinn Arnór Eyvar Ólafsson gekk í dag við liðs við Fjölni frá ÍBV, en þetta kom fram í tilkynningu frá Grafarvogsfélaginu.

Skrifaði hann undir tveggja ára samning við Fjölni, en hann hefur spilað allan sinn feril með ÍBV.

Arnór Eyvar steig sín fyrstu skref í meistaraflokki Eyjamanna árið 2007 og síðan þá hefur hann verið fastamaður í liðinu. Hann spilaði þó ekkert á afstöðnu sumri vegna meiðsla, en hann þurfti að fara í aðgerð.

Fjölnismenn segja í yfirlýsingunni að miklar vonir séu bundnar við Arnór Eyvar, en á meðfylgjandi mynd má sjá hann ásamt þjálfaranum Ágústi Gylfasyni og stjórnarmanni knattspyrnudeildar, Árna Hermannssyni.
Arnór Eyvar lék alls 141 leik fyrir ÍBV í deild og bikar og skoraði fjögur mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.