Fotbolti.net
18.11.14 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Máni í þjálfarateymi Keflavíkur (Staðfest)

Máni í þjálfarateymi Keflavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Máni Pétursson hefur bæst í þjálfarateymi Keflavíkur en hann er búinn að skrifa undir samning hjá félaginu. Þetta staðfesti Máni í samtali við Fótbolta.net í dag.
Kristján Guðmundsson gerði í haust nýjan samning við Keflvíkinga en Gunnar Magnús Jónsson var honum til aðstoðar á síðasta tímabili.

Gunnar Magnús verður áfram í þjálfarateyminu en Máni mun einnig koma inn í það.

Máni þekkir til í Keflavík því hann var aðstoðarþjálfari liðsins síðari hluta tímabils í fyrra eftir að Kristján tók við af Zoran Daníel Ljubicic.

Máni þjálfaði kvennalið Stjörnunnar 2008 og 2009 en áður þjálfaði hann yngri flokka hjá Haukum og Fjölni.

Keflavík endaði í 8. sæti í Pepsi-deildinni í sumar en liðið ætlar sér stærri hluti á næsta tímabili.

Guðjón Árni Antoníusson og Hólmar Örn Rúnarsson eru báðir komnir til Keflavíkur frá FH og fyrir helgi kom Alexander Magnússon til félagsins frá Grindavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.