Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. nóvember 2020 21:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lineker: Ímynda sér að fá reisupassann fyrir þetta? Jesús minn
Icelandair
Mynd: Getty Images
Birkir Már Sævarsson fékk að líta rauða spjaldið þegar hann var dæmdur brotlegur á 54. mínútu gegn Englandi á Wembley.

Dómari leiksins mat það sem svo að Birkir hafi verðskuldað að fá gult spjald fyrir viðskipti sín og Bukayo Saka.

Birkir fékk þar sitt annað gula spjald og þar með rautt. Fyrra spjaldið var einnig fyrir litlar sakir eins og lesa má um í textalýsingunni.

„Birkir fær sitt annað gula spjald fyrir að brjóta á Saka. Það var nú alls ekki mikið í þessu en dómarinn rekur Birki af velli," skrifaði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í beinni textalýsingu frá Wembley.

Gary Lineker, fyrrum leikmaður Tottenham, Everton, Barcelona, Leicester og enska landsliðsins tjáði sig um spjaldið á Twitter.

„Ímynda sér að fá reisupassann fyrir þetta? Jesús minn." Skrifaði Lineker.


Athugasemdir
banner
banner
banner