Fotbolti.net
18.12.20 - 06:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnþór Ingi og Ómar Castaldo framlengja við KR (Staðfest)

Arnþór Ingi og Ómar Castaldo framlengja við KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í gær skrifuðu þeir Arnþór Ingi Kristinsson og Ómar Castaldo Einarsson undir nýja samninga við KR.

Arnþór Ingi er miðjumaður sem gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2019 frá Víkingi Reykjavík. Ómar er markvörður sem er uppalinn hjá KR og var hjá KV á liðinni leiktíð. Ómar var valinn næstbesti markvörður 3. deildar af hlaðvarpsþættinum Ástríðunni þegar KV komst upp í 2. deild.
Frá þessu er greint á Instagram-síðu KR í gær.

Arnþór er þrítugur og Ómar er nítján ára. Ómar á að baki fimm leiki með unglingalandsliðunum.
Ómar Castaldo

Ómar Castaldo

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.