Fotbolti.net
18.12.20 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Hallbera samdi til eins árs við AIK (Staðfest)

Hallbera Guðný Gísladóttir.

Hallbera Guðný Gísladóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Hallbera Guðný Gísladóttir hefur gert eins árs samning við AIK.

Fótbolti.net greindi frá því á þriðjudag að Hallbera væri á leið til sænska félagsins sem er nýliði í efstu deild.
AIK verður þriðja sænska félagið sem Hallbera spilar fyrir en áður hafði hún leikið fyrir Pitea og Djurgarden.

Frá 2018 hefur hún verið hjá Val en hún varð Íslandsmeistari með liðinu í fyrra. Það var hennar sjöundi Íslandsmeistaratitill og fimmti bikarmeistaratitill.

Hallbera, sem er 34 ára, á 117 landsleiki fyrir Ísland og hjálpaði landsliðinu að komast á Evrópumótið í Englandi.

„Hallbera er nútíma bakvörður sem mun gera okkur traustari varnarlega og styrkja sóknarleikinn. Það er frábær styrking fyrir félagið að fá svona reynslumikinn og góðan leikmann," segir Anne Mäkinen.

„Ég er mjög spennt og ánægð með að vera hluti af endurkomu AIK í efstu deild. Ég er tilbúin að leggja mikið á mig til að hjálpa liðinu og nota reynslu mína," segir Hallbera við heimasíðu AIK en þar er koma hennar staðfest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.