Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. janúar 2020 18:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grikkland: Sverrir og félagar á toppi deildarinnar
Sverrir Ingi Ingason.
Sverrir Ingi Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Ingi Ingason lék að venju allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá PAOK er liðið vann þægilegan sigur á Asteras Tripolis í grísku úrvalsdeildinni.

Karol Sidwerski skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 29. mínútu. Í seinni hálfleiknum bætti PAOK við tveimur mörkum gegn einu marki Asteras Tripolis. Lokatölur 3-1 fyrir PAOK.

Dani Suarez, leikmaður Asteras Tripolis, fékk að líta rauða spjaldið á 64. mínútu og það hjálpaði ekki fyrir gestina.

PAOK er nú komið upp fyrir Olympiakos á toppi deildarinnar, en Olympiakos getur endurheimt toppsætið með sigri á Aris sem er núna í gangi.

Ögmundur Kristinsson stóð fyrr í dag í marki Larissa í 3-0 tapi gegn AEK Aþenu. Larissa er í tíunda sæti deildarinnar með 23 stig úr 19 leikjum.
Athugasemdir
banner