Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. janúar 2021 16:15
Magnús Már Einarsson
Guðrún Gyða í Þrótt R. (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. hefur fengið sóknarmanninn Guðrúnu Gyðu Haralz í sínar raðir frá Breiðabliki.

Guðrún Gyða er 21 árs gömul en hún á að baki 17 leiki í Pepsi Max-deildinni.

Síðastliðið sumar spilaði hún tvo leiki með Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Auk Breiðabliks hefur hún leikið með KR, HK/Víkingi og Augnabliki.

Þróttur endaði í 5. sæti í Pepsi Max-deild kvenna síðastliðið sumar en nýliðarnir komu skemmtilega á óvart.
Athugasemdir
banner
banner