19.02.15 - 18:32
Elvar Geir Magnússon
Miðvörðurinn Avni Pepa til ÍBV (Staðfest)

Avni Pepa.

Mynd: Jørn H. Skjærpe / Rogalands Avis

Avni Pepa.

Mynd: Jørn H. Skjærpe / Rogalands Avis
Avni Pepa hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV en þetta kemur fram í tilynningu frá félaginu. Pepa er 26 ára Kosovomaður með norskt ríkisfang.
Hann hefur um langt árabil leikið í norsku úrvalsdeildinni með Start og Sandnes Ulf þar sem hann lék á sl. keppnistímabili. Hann lék árin 2007-2011 með Start og árin 2012-2014 með Sandnes Ulf, og á rúmlega 100 leiki að baki í norsku úrvalsdeildinni.
Pepa steig sín fyrstu spor á ferlinum hjá Start þegar Jóhannes Harðarson, núverandi þjálfari ÍBV, var þar leikmaður. Síðar lék hann hjá Sandnes Ulf með Hannesi Halldórssyni, Hannesi Þ. Sigurðssyni og Eyjamanninum Eiði Aroni Sigurbjörnssyni.
Pepa leikur í hjarta varnarinnar og ætlað það hlutverk að styrkja varnarleik liðsins og koma með reynslu inn í lið ÍBV. Hann mun hefja strax æfingar með liðinu og leika sinn fyrsta leik með ÍBV sem allra fyrst samkvæmt tilkynningunni.
„Avni verður mikilvægur hlekkur í því þriggja ára verkefni sem miðar að því að byggja upp öflugt lið ÍBV, sem hefur það markmið að ná betri árangri en undanfarin ár. Markmið félagsins og Jóhannesar Harðarsonar þjálfara liðsins, er að byggja upp lið sem leikur skemmtilega knattspyrnu, byggir á þeirri Eyjastemmingu sem lið ÍBV á að byggja á, og síðast en ekki síst að efla yngri leikmenn liðsins,\" segir í tilkynningunni.