19.03.15 - 15:16
Elvar Geir Magnússon
Gísli Páll Helgason aftur í Þór (Staðfest)

Gísli Páll Helgason hefur kvatt Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gísli Páll Helgason hefur kvatt Blika.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn Gísli Páll Helgason er genginn aftur í raðir uppeldisfélags síns, Þórs á Akureyri.
Gísli hefur verið í herbúðum Breiðabliks síðan 2012 og spilaði hann 55 leiki í deild og bikar fyrir Kópavogsliðið.

„Hann er mjög öflugur varnarmaður og á 14 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Gísli Páll stundar nú nám í Bandaríkjunum og getur því væntanlega einungis spilað hluta af tímabilinu með sínu gamla liði. En þetta er samt mikil styrking fyrir Þórsliðið,\" segir á blikar.is.
Gísli Páll sendi knattspynudeild Breiðabliks þessa kveðju:
„Ég vill nota tækifærið og þakka fyrir skemmtilegan og lærdómsríkan tíma hjá Breiðabliki, þar sem ég kynntist mikið af frábæru fólki sem starfar í kringum félagið. Betri og vandaðri klúbb er erfitt að finna og ég óska þeim alls hins besta á komandi tímum, þar sem framtíðin er svo sannarlega björt! “ skrifaði Gísli Páll.
Þórsar féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra og leika í 1. deild í sumar undir stjórn Donna, Halldórs Jóns Sigurðssonar.

Heimild: blikar.is