Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   fim 19. mars 2026 17:00
Kári Snorrason
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Markús skrifaði undir fjögurra ára samning við Skagamenn.
Markús skrifaði undir fjögurra ára samning við Skagamenn.
Mynd: ÍA
Rifti samningi sínum við Triestina í upphafi mánaðar.
Rifti samningi sínum við Triestina í upphafi mánaðar.
Mynd: Triestina
Markús Páll Ellertsson gekk til liðs við ÍA í upphafi mánaðar eftir að hafa rift samningi sínum við Triestina á Ítalíu.

Markús Páll er sóknarmaður fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá Fram. Hann er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu.

Eftir tímabilið 2024 með Fram í Bestu deildinni samdi hann við Triestina. Samkvæmt Transfermarkt hafði Markús spilað fjóra leiki með Triestina í Serie C áður en hann rifti samningi sínum. Fótbolti.net ræddi við Markús í tilefni heimkomunnar.

„Það byrjaði eiginlega allt að ganga illa í janúar. Nýr þjálfari kom inn og ég fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum. Það var komið á þann stað að ég þurfti að ákveða næsta skref,“ sagði Markús aðspurður um hvernig það hafi komið til að hann fór upp á Skaga.

Fékstu einhverjar útskýringar?
„Nei, það er góð spurning. Yfirmaður fótboltamála, sem fékk mig inn, var látinn fara og það kemur nýr inn og hann var með aðra sýn á þessu. Það er erfitt að segja til um þetta.“

Hvernig geriru þessa Ítalíudvöl upp?
„Maður lærði fullt þarna úti. Fékk að búa einn í fyrsta skipti, þurfti að sjá um sjálfan mig. Maður lærði af þessu þó að þetta hafi ekki farið eins og ég hafi viljað. Þetta er upp og niður. Það var mjög leiðinlegt að þurfa að enda þetta svona.“

Spennandi sumar á Skipaskaga
„Það eru spennandi hlutir að gerast þarna. Þeir eru með nýja aðstöðu og búnir að gera góð kaup á undirbúningstímabilinu. Ég ætla ekki að setja neinar væntingar á okkur. En ég er spenntur að sjá hvernig okkur mun ganga.“

Áttiru í viðræðum við fleiri lið?
„Það var einhver önnur lið sem komu til greina en ég nenni ekki að vera fara út í það. Þetta gerðist frekar hratt, ég rifti 2. mars og Ingimar framkvæmdastjóri ÍA var snöggur að hringja í mig og spurði hvernig staðan væri og ég tók fund með þeim.“
Slapp
banner
banner
banner