Marcelo Bielsa hafði sitt til málanna að leggja eftir 1-1 jafntefli Leeds United gegn Liverpool í kvöld.
Lítið var rætt um leikinn að leikslokum. Tillagan að evrópskri Ofurdeild var í umræðunni og gaf Bielsa sína skoðun, þar sem hann sagðist vera hissa á undrun fólks.
„Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. Heimurinn hefur verið að þróast í þessa átt í langan tíma. Þeir ríku verða ríkari og þeim er sama um afleiðingarnar sem það hefur fyrir fátæka fólkið," sagði Bielsa.
„Þetta sjáum við í öllu öðru, þeir ríku reyna alltaf að verða ríkari á kostnað þeirra sem minna mega sín. Af hverju ætti þetta að vera öðruvísi í fótboltaheiminum? Ég skil ekki hvers vegna fólk er svona hissa."
Athugasemdir