Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. apríl 2021 15:00
Magnús Már Einarsson
Vieira gæti tekið við Crystal Palace
Mynd: Getty Images
Patrick Vieira, fyrrum fyrirliði Arsenal, gæti tekið við sem stjóri Crystal Palace í sumar.

Hinn 73 ára gamli Roy Hodgson hættir mögulega með Palace í sumar en hann hefur haldið liðinu á bilinu 11-14. sæti síðan hann tók við árið 2017.

Crystal Palace er að skoða stjóramálin og Sean Dyche, Eddie Howe, Frank Lampard, Steve Cooper og Valerien Ismael hafa veirð nefndir til sögunnar.

The Athletic segir að hinn 44 ára gamli Vieira komi einnig sterklega til greina en hann hætti sem þjálfari Nice í Frakklandi í desember.

Vieira var orðaður við Bournemouth fyrr á þessu ári en hann gæti nú tekið við Crystal Palace í sumar.
Athugasemdir
banner
banner