Ian Woan, aðstoðarþjálfari Sean Dyche hjá Burnley, var í dag greindur með kórónuveiruna.
Allir leikmenn og starfsmenn aðalliðshóps Burnley voru prófaðir fyrir kórónuveirusmiti um síðustu helgi þar sem ensk úrvalsdeildarfélög máttu í dag byrja að æfa í litlum hópum.
Sex einstaklingar úr þremur mismunandi félögum greindust með veiruna og Woan á meðal þeirra.
Woan, sem er einkennalaus, fer núna í einangrun í sjö daga eins og reglur ensku úrvalsdeildarinnar segja til um.
Leikmenn Burnley eru að byrja að æfa og þar á meðal er Jóhann Berg Guðmundsson sem er á meðal leikmanna félagsins. Jóhann Berg hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili vegna meiðsla.
Athugasemdir