Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. maí 2022 17:49
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Everton og Crystal Palace: Keane kemur inn - Gallagher á bekknum
Michael Keane kemur inn í lið Everton
Michael Keane kemur inn í lið Everton
Mynd: EPA
Everton og Crystal Palace eigast við á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni klukkan 18:45 í kvöld en heimamenn geta tryggt sæti sitt í deildinni.

Everton situr í 16. sæti deildarinnar með 36 stig en Palace er í 13. sæti með 45 stig.

Frank Lampard, stjóri Everton, gerir eina breytingu á liðinu en enski miðvörðurinn Michael Keane kemur inn fyrir Jarrad Branthwaite sem var rekinn af velli síðustu helgi.

Patrick Vieira gerir þrjár breytingar á liði Crystal Palace og eru þar góðar fréttir fyrir Everton en einn þeirra besti maður, Conor Gallagher, er á bekknum. Cheikhou Kouyaté og Luka Milivojovic detta einnig út og inn koma þeir Jeffrey Schlupp, Will Hughes og Jordan Ayew.

Everton: Pickford; Coleman, Keane, Holgate, Mykolenko; Iwobi, Doucoure, Andre Gomes; Gordon, Calvert-Lewin, Richarlison.

Crystal Palace: Butland, Clyne, Guehi, Andersen, Mitchell; Hughes, Schlupp, Eze; Ayew, Mateta, Zaha.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner