Þrír kvendómarar og þrír kvenkyns aðstoðardómarar eru meðal 129 dómara sem valdir eru til starfa á HM í Katar. Aldrei áður hafa kvenkyns dómarar starfað á stórmóti í landsliðum karla.
Hin franska Stephanie Frappart er meðal þeirra sem er valin en hún dæmdi karlaleiki í undankeppninni og hefur dæmt í Meistaradeildinni. Þá dæmdi hún úrslitaleik HM kvenna 2019.
Pierluigi Collina, formaður dómaranefndar FIFA, segir að horft sé til gæða en ekki kyns þegar dómarar eru valdir. Hann segist vonast til þess að í framtíðinni verði litið á það sem sjálfsagðan hlut að konur dæmi mikilvæga leiki í karlakeppnum.
Þá er einnig á listanum umdeildur dómari sem fékk sólsting í Afríkukeppninni í janúar.

Það er Sambíumaðurinn Janny Sikazwe sem flautaði leik Malí og Túnis of snemma af.
Fulltrúar Englands í dómgæslu á mótinu verða Michael Oliver og Anthony Taylor.
Athugasemdir