Fotbolti.net
19.05.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

De Zerbi: Allir vilja sjá okkur falla

De Zerbi: Allir vilja sjá okkur falla
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham er spenntur fyrir mikilvægum leik á útivelli gegn Chelsea sem hefst von bráðar.
Tottenham nægir jafntefli til þess að svo gott sem bjarga sér frá falli, en tap í kvöld þýðir að liðið getur enn fallið þegar lokaumferð tímabilsins ber að garði um helgina.

Það er mikið undir á Stamford Bridge þar sem Chelsea er í harðri baráttu um Evrópusæti.

„Strákarnir þurfa að læra að njóta pressunnar, hún er jákvæð. Þessi pressa á að hjálpa okkur að finna auka hvatningu til að halda okkur uppi. Ef allir vilja sjá Tottenham falla niður um deild þá er það mjög mikil hvatning fyrir mig til að bjarga liðinu frá falli. Ég vona að leikmennirnir finni fyrir sömu tilfinningum og ég," sagði De Zerbi á fréttamannafundi í gær.

„Við verðum að samþykkja að svona fjandskapur gerir leikinn skemmtilegri. Hugsunin um að fagna sigri á þeirra heimavelli ætti að veita okkur innblástur."

Tottenham er tveimur stigum frá fallsæti og með talsvert betri markatölu heldur en West Ham. Jafntefli á Brúnni er því nóg til að forðast fall. Tapi Spurs leiknum mun tímabilið ráðast í lokaumferðinni, þegar lærlingar De Zerbi taka á móti Everton.

Tottenham nægir eitt stig samanlagt úr þessum síðustu tveimur leikjum til að forðast fall. Tapi liðið báðum leikjunum fær West Ham tækifæri til að bjarga sér frá falli á heimavelli gegn Leeds.

„Þetta er erfið áskorun en það er undir okkur komið að vera með rétt hugarfar og mæta einbeittir til leiks. Við þurfum að sýna samheldni og baráttu til að fá eitthvað úr þessum leik. Við verðum að nota stoltið okkar sem hvatningu. Allir vilja sjá Tottenham falla og það ætti að hvetja hvern einasta leikmann, starfsmann og stuðningsmann til dáða."

De Zerbi hefur líka varað leikmenn sína við því að fara inn í síðustu leiki tímabilsins til að spila upp á jafntefli.

„Við megum ekki mæta inn í neinn leik til að spila uppá jafntefli, það er stórhættulegt. Við eigum alltaf að spila okkar leik og reyna að sigra."

Vicario gæti spilað - „Tek ákvörðun á morgun“
TENGT EFNI

Vicario gæti spilað - „Tek ákvörðun á morgun“

De Zerbi: Allir vilja sjá okkur falla
Canon

Mynd: EPA

De Zerbi: Allir vilja sjá okkur falla
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.