Fotbolti.net
19.05.26 - 10:55
Elvar Geir Magnússon

Guardiola búinn að tilkynna leikmönnum að hann sé að hætta

Guardiola búinn að tilkynna leikmönnum að hann sé að hætta
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola hefur tilkynnt leikmönnum Manchester City að hann muni hætta hjá félaginu eftir lokaumferðina á sunnudag, þegar City mætir Aston Villa.

Guardian greinir frá en Guardiola fannst hann þurfa að ræða við leikmannahópinn eftir að fjölmargir fjölmiðlar greindu frá tíðundunum í gær.

Hann hafði vonast til að geta haldið ákvörðuninni leyndri lengur svo hún myndi ekki trufla lokaleikina. City þarf að vinna Bournemouth í kvöld til að eiga möguleika á meistaratitlinum á sunnudag.
Maresca tekur við af Pep
TENGT EFNI

Maresca tekur við af Pep

Guardiola hefur verið hjá City í áratug en hans fyrrum aðstoðarmaður, Enzo Maresca, mun að öllum líkindum taka við City.

City ku vera búið að gera samkomulag við Maresca um þriggja ára samning en það þarf að ganga frá málum við Chelsea eftir að hann lét af störfum hjá félaginu um mitt tímabil.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.