Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Markverðir skoska HM hópsins allir varamenn í sínum liðum
Craig Gordon er 43 ára og er í hópnum.
Craig Gordon er 43 ára og er í hópnum.
Mynd: EPA
Skotland er í riðli með Haítí, Marokkó og Brasilíu í riðli á HM í sumar en Steve Clarke, þjálfari liðsins, tilkynnti í dag 26 manna hóp fyrir mótið.

Markvörðurinn reynslumikli Craig Gordon, 43 ára, er meðal leikmanna í hópnum en hann er varamarkvörður Hearts.

Leikæfing markvarða skoska liðsins er áhyggjuefni en allir þrír markverðirnir í hópnum eru varamarkverðir hjá sínum liðum. Samtals hafa Gordon, Angus Gunn og Liam Kelly spilað fimmtán leiki á tímabilinu,

Þar af hefur Gunn spilað fimm landsleiki fyrir Skotland en aðeins einn leik fyrir Southampton og þá kom hann inn af bekknum.

Sóknarmaðurinn Ross Stewart hjá Southampton var valinn en báðir landsleikir hans fyrir Skotland komu 2022. Meiðslavandræði hafa skapað vesen undanfarin ár fyrir þennan 29 ára leikmann en hann er með 11 mörk í 33 leikjum fyrir Southampton á tímabilinu.

Findlay Curtis, 19 ára kantmaður Rangers, er valinn en ekki er pláss fyrir Lennon Miller, miðjumann Udinese.

Markverðir: Craig Gordon, Angus Gunn, Liam Kelly.

Varnarmenn: Grant Hanley, Jack Hendry, Aaron Hickey, Dom Hyam, Scott McKenna, Nathan Patterson, Anthony Ralston, Andy Robertson, John Souttar, Kieran Tierney.

Miðjumenn: Ryan Christie, Findlay Curtis, Lewis Ferguson, Ben Gannon-Doak, Billy Gilmour, John McGinn, Kenny McLean, Scott McTominay.

Sóknarmenn: Che Adams, Lyndon Dykes, George Hirst, Lawrence Shankland, Ross Stewart.


Slapp
banner
banner