Fotbolti.net
19.05.26 - 14:47
Elvar Geir Magnússon

Ronaldo í hópnum og fer á sitt sjötta heimsmeistaramót

Ronaldo er í HM hópnum.

Ronaldo er í HM hópnum.

Canon

Mynd: EPA

Portúgalska landsliðið hefur staðfest hóp sinn fyrir HM í sumar. Hinn 41 árs gamli Cristiano Ronaldo er í hópnum og mun spila á sínu sjötta heimsmeistaramóti.

Lionel Messi, Argentínu, er líka á leið á sitt sjötta HM en enginn leikmaður hefur til þessa leikið á fleiri heimsmeistaramótum en fimm.

Ronaldo hefur verið hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu síðan í janúar 2023.

Það er ekkert óvænt í portúgalska hópnum og þar má finna þekkt nöfn á borð við Bruno Fernandes, Vitinha og Joao Neves.

Portúgal verður í riðli með Kongó, Úsbekistan og Kólumbíu á HM.
Portúgalski hópurinn:

Markverðir: Diogo Costa (Porto), Jose Sa (Wolves), Rui Silva (Sporting), Ricardo Velho (Genclerbirligi).

Varnarmenn: Diogo Dalot (Manchester United), Matheus Nunes (Manchester City), Ruben Dias (Manchester City), Nelson Semedo (Fenerbahce), Joao Cancelo (Barcelona), Nuno Mendes (Paris St-Germain), Goncalo Inacio (Sporting), Renato Veiga (Villarreal), Tomas Araujo (Benfica).

Miðjumenn: Ruben Neves (Al-Hilal), Samu Costa (Mallorca), Joao Neves (Paris St-Germain), Vitinha (Paris St-Germain), Bruno Fernandes (Manchester United), Bernardo Silva (Manchester City).

Sóknarmenn: Cristiano Ronaldo (Al-Nassr), Joao Felix (Al-Nassr), Francisco Trincao (Sporting), Francisco Conceicao (Juventus), Pedro Neto (Chelsea), Rafael Leao (AC Milan), Goncalo Guedes (Real Sociedad), Goncalo Ramos (Paris St-Germain).
Roberto Martínez þjálfar Portúgal.

Roberto Martínez þjálfar Portúgal.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.