Fotbolti.net
19.05.26 - 17:57
Ívan Guðjón Baldursson

Southampton dæmt úr leik í umspilinu og fær refsistig

Southampton dæmt úr leik í umspilinu og fær refsistig
Canon

Mynd: Daily Mail

Southampton átti að spila úrslitaleik umspils Championship deildarinnar við Hull City næsta laugardag en hefur verið dæmt úr leik.
Southampton sló Middlesbrough úr leik í undanúrslitum umspilsins en þau úrslit hafa verið ógilduð og því fer Middlesbrough í úrslitaleikinn gegn Hull þar sem í húfi er sæti í úrvalsdeildinni. Talað er um leikinn sem þann verðmætasta í fótboltanum.

Njósnari frá Southampton var gripinn við að taka myndband af æfingu hjá Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik liðanna í umspilinu og var hrint rannsókn af stað.

Kæra Southampton fyrir njósnir
TENGT EFNI

Kæra Southampton fyrir njósnir



Southampton viðurkenndi ýmis brot á reglum ensku neðrideildanna (EFL) þar sem félagið hefur í gegnum tíðina njósnað ólöglega um fleiri æfingar heldur en þessa einu æfingu hjá Middlesbrough á dögunum.

Sérstök regla gerir það refsivert hjá félagsliðum að fylgjast með æfingum andstæðinga sinna innan við 72 klukkustundum fyrir upphafsflautið.

Birta mynd af njósnaranum - Faldi sig bak við tré
TENGT EFNI

Birta mynd af njósnaranum - Faldi sig bak við tré



Sjálfstæð dómnefnd fékk málið í hendurnar og ákvað að dæma Southampton úr leik í umspilinu. Þar að auki byrjar liðið næstu leiktíð í Championship-deildinni með fjögur refsistig.

Southampton viðurkenndi að hafa njósnað ólöglega fyrir leiki gegn Oxford United í desember, Ipswich Town í apríl og svo gegn Middlesvbrough í maí.

Southampton hefur áfrýjunarrétt sem gæti tafið framkvæmd úrslitaleiks umspilsins.

„Eina ásættanlega niðurstaðan að Southampton verði dæmt úr leik“
TENGT EFNI

„Eina ásættanlega niðurstaðan að Southampton verði dæmt úr leik“

Southampton dæmt úr leik í umspilinu og fær refsistig
Canon

Mynd: EPA

Southampton dæmt úr leik í umspilinu og fær refsistig
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.