Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 18:09
Ívan Guðjón Baldursson
Stórveldi tilbúin að kaupa Bowen
Mynd: EPA
The Guardian greinir frá því að þrjú stórveldi úr ensku úrvalsdeildinni séu tilbúin að leggja fram tilboð í Jarrod Bowen ef West Ham fellur um deild.

Hamrarnir munu neyðast til að selja leikmenn ef þeir falla og eru Liverpool, Chelsea og Manchester United öll spennt fyrir Bowen.

Bowen hefur verið besti leikmaður West Ham undanfarin ár en hann er 29 ára hægri kantmaður að upplagi, sem getur einnig spilað í fremstu víglínu og í holunni fyrir aftan fremsta mann.

Bowen hefur komið að 21 marki í 41 leik með Hömrunum á tímabilinu sem er hans lakasta framlag á síðustu árum.

Bowen hefur verið algjör burðarstólpur fyrir Hamrana og hefur í heildina komið með beinum hætti að 146 mörkum í 279 keppnisleikjum.

Bowen er fyrirliði West Ham og á 22 landsleiki að baki fyrir England. Hann er með fjögur ár eftir af samningi.
Slapp
banner
banner