Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 19. júní 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Gerrard fær leikmann Liverpool á láni
Mynd: Getty Images
Englendingurinn Sheyi Ojo er genginn í raðir skoska liðsins Rangers á láni frá Liverpool.

Ojo er fæddur árið 1997 en hann hefur ekki náð að brjóta sér leið inni í aðallið Liverpool. Hann hefur undanfarin ár verið á láni hjá hinum og þessum liðum og nú síðast hjá Stade de Reims í Frakklandi.

Hann spilaði átján leiki fyrir franska liðið og skoraði í þeim eitt mark.

Liverpool goðsögnin, Steven Gerrard er stjóri Rangers. Ojo á að baki þréttán leiki fyrir aðallið Liverpool.

Skoska deildin hefst í byrjun ágúst og má því ætla að Ojo verði klár í fyrsta leik með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner