19.06.25 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal borgar aðeins meira en riftunarverðið fyrir Zubimendi

Martin Zubimendi.

Mynd: EPA

Martin Zubimendi.

Mynd: EPA
Arsenal er að ganga frá kaupum á spænska miðjumanninum Martin Zubimendi frá Real Sociedad.
Fabrizio Romano hefur sett sitt víðfræga 'here we go' á þessi skipti og segir hann jafnframt að Arsenal muni borga aðeins meira en 60 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Fabrizio Romano hefur sett sitt víðfræga 'here we go' á þessi skipti og segir hann jafnframt að Arsenal muni borga aðeins meira en 60 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Í samningi Zubimendi er riftunarverð upp á 60 milljónir evra en Arsenal mun borga Sociedad aðeins hærri upphæð fyrir kappann til þess að geta borgað fyrir hann í nokkrum greiðslum í staðinn fyrir að borga alla upphæðina í einni greiðslu.
Zubimendi er djúpur miðjumaður sem var sterklega orðaður við Liverpool síðasta sumar. Hann endaði þá á því að vera áfram hjá Sociedad.
Hann er 26 ára gamall og hefur spilað 18 landsleiki fyrir Spánverja.