Fotbolti.net
19.06.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu atvikin: Lopetegui ósáttur með Marsch og læti brutust út eftir leik

Jesse Marsch var ekki sáttur

Jesse Marsch var ekki sáttur

Canon

Mynd: EPA

Stympingar urðu eftir 6-0 slátrun Kanada á Katar á heimsmeistaramótinu í nótt.
Marsch um Kone: Hluti af ástæðunni fyrir að maður elskar hann
TENGT EFNI

Marsch um Kone: Hluti af ástæðunni fyrir að maður elskar hann

Katarar voru fremur grófir í leiknum og fengu að líta tvö rauð spjöld, en seinna rauða spjaldið kom eftir brot á Ismael Kone sem fótbrotnaði illa.

Kanada var þá 3-0 yfir en bætti þremur mörkum við og á nú stærsta sigur mótsins til þessa ásamt Þjóðverjum.

Eftir leikinn fór Julen Lopetegui, þjálfari Katar, til Jesse Marsch, þjálfara Kanada. Þeir ræddu málin og tókust í hendur, en Marsch fékk algerlega nóg af tuðinu í Lopetegui og gekk í burtu.

Lopetegui og aðstoðarmenn hans kölluðu á eftir Marsch og stuttu síðar brutust út stympingar milli leikmanna og þjálfarateyma liðanna.

Hitinn byrjaði í kringum brotið á Kone, en Katarar töldu gult spjald nægilega refsingu. Þeir mótmæltu harðlega og það skapaði spennu á milli liðanna.

Eftir leikinn vildu hvorki Lopetegui né Marsch ræða hvað fór þeirra á milli, en samkvæmt DAZN á Lopetegui að hafa kvartað yfir því að Kanada hafi haldið áfram að sækja í stöðunni 6-0 þegar lítið var eftir.

Hægt er að sjá rifrildi þeirra og stympingarnar hér fyrir neðan.


Lopetegui and Marsch having a quarrel
by
u/SellRevolutionary in
soccer



Scuffle after full time whistle between Canada and Qatar
by
u/977x in
soccer
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.