Mótastjóri KSÍ: RÚV óskaði eftir því

RÚV sýnir bikarleikinn á milli Víkings og Breiðabliks en SÝN sýnir deildarleikinn.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Úr leik Víkings og Breiðabliks síðasta haust.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik og Víkingur mætast í tvígang seinna í þessum mánuði með einungis nokkurra daga millibili. Liðin mætast í Bestu deildinni eftir slétta viku, fimmtudagskvöldið 25. júní, og svo tæpum þremur sólarhringum síðar, sunnudaginn 28. júní, í Mjólkurbikarnum. Báðir leikir fara fram á Kópavogsvelli. Þessi undanúrslitaleikur er spilaður í júní vegna þátttöku Víkings í Evrópukeppni sem hefst í næsta mánuði.
KSÍ tilkynnti um dagskrána í Mjólkurbikarnum fyrr í dag og vakti athygli að bikarleikurinn var settur á sunnudag klukkan 14:00 en upprunalega var stefnt að því að spila undanúrslitin í bikarnum 24. og 25. júní. Hinn undanúrslitaleikurinn í bikarnum, viðureign Fylkis og Aftureldingar, fer svo ekki fram fyrr en 21. júlí.

TENGT EFNI
Rúmar þrjár vikur á milli undanúrslitaleikjanna í Mjólkurbikarnum
HM er í fullum gangi og óskaði RÚV, sem á sjónvarpsréttinn á bikarkeppninni, eftir því að sá leikur yrði spilaður á sunnudag og áður en dagskráin á HM. sem RÚV sýnir líka, hefst þann daginn. Næsta fimmtudagskvöld, klukkan 20:00, fer fram lokaumferðin í E-riðli HM og 32-liða úrslitin hefjast sunnudagskvöldið 28. júní.
Í E-riðli á HM eru Þýskaland, Kúrasaó, Ekvador og Fílabeinsströndin.
25. júní er enginn annar leikur í efstu tveimur deildum karla og kvenna og var SÝN, rétthafinn á Bestu deildinni, til í að víxla leikjunum.
„Við reyndum af ósk RÚV að koma þessu þannig fyrir að þeir gætu sýnt undanúrslitaleikina og SÝN var til í það. Hinn undanúrslitaleikurinn er svo spilaður seinni partinn í júlí því þá verður HM lokið," segir Birkir Sveinsson sem er mótastjóri KSÍ.
Besta deildin 25. júní í beinni á SÝN Sport
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)
Mjólkurbikarinn 28. júní í beinni á RÚV
14:00 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)