Fotbolti.net
18.06.26 - 23:12
Brynjar Ingi Erluson

Kanada í stuði og Katarar manni færri

Kanada í stuði og Katarar manni færri
Canon

Mynd: EPA

Heimamenn í Kanada eru 3-0 yfir gegn tíu leikmönnum Katar en síðari hálfleikur var að hefjast. Miðað við sóknarþunga Kanada gæti þetta orðið stærsti sigur mótsins.
Cyle Larin og Jonathan David komu Kanada í 2-0 áður en Homam Al-Hamin fékk rauða spjaldið í vörn Katars fyrir að keyra aftan í Tajon Buchanan á 33. mínútu.

Sjáðu markið hjá Larin
Sjáðu markið hjá David

Áfram hélt Kanada að pressa á Katara sem björguðu nokkrum sinnum á línu.

Sjáðu rauða spjaldið hér

Undir lok hálfleiksins gerði David annað mark sitt eftir þunga pressu og er staðan 3-0.

Sjáðu annað mark David

Kanada-menn í draumalandi sem ætla að bjóða stuðningsmönnum upp á alvöru veislu og jafnvel krækja í stærsta sigurinn á mótinu, en Þýskaland leiðir þá keppni eftir að hafa slátrað Curacao, 7-1, í fyrstu umferðinni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.