Tilfinningarússíbani hjá markverði Katar

Mahmud Abunada hefur farið í gegnum allan tilfinningaskalann í fyrstu tveimur umferðunum

Mynd: EPA

Mahmud Abunada, markvörður Katar, hefur upplifað mikinn tilfinningarússíbana síðustu daga.

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Fyrrum lærisveinn Heimis í essinu sínu
Abunada var ekki aðalmarkvörður Katar fyrir mótið og raunar var reiknað með því að hann yrði varamarkvörður.
Fáir Íslendingar vissu hver hann var fyrir utan kannski Heimi Hallgrímsson og íslenska þjálfarateymi hans, en Abunada þreytti frumraun sína undir stjórn Heimis hjá Al Arabi í Katar.
Hann fékk óvænt traustið gegn Sviss og átti stjörnuframmistöðu í frumraun sinni á heimsmeistaramóti í 1-1 jafntefli. Hann var meðal annars valinn maður dagsins hér á Fótbolti.net og allt í einu vissu allir hver hann var.
Eftir leikinn gegn Sviss grét Abunada gleðitárum, en það voru engin gleðitár í nótt.
Hann stóð á milli stanganna gegn heimamönnum í Kanada, sem unnu sögulegan 6-0 sigur. Abunada fékk ekki mikla hjálp frá liðsfélögum sínum, en Katar spilaði manni færri eftir hálftíma leik og tveimur mönnum færri síðasta hálftímann.
Á meðan leikmenn og þjálfarateymi Kanada og Katar tókust á eftir leik vegna hræðilegs fótbrots Ismael Kone sat Abunada með tárin í augunum í vítateignum.
Einn liðsfélagi Abunada huggaði hann áður en Jacob Shaffelburg, leikmaður kanadíska liðsins, kom til hans og hughreysti hann.
Tilfinningarússíbani hjá honum, sem er skiljanlegt. Draumur flestra fótboltamanna er að spila á HM og eðlilegt að tilfinningarnar geti borið menn ofurliði.
Hann gæti sprengt tilfinningaskalann þegar Katar mætir Bosníu í lokaumferðinni. Katar á enn möguleika á að komast í 32-liða úrslitin en þarf líklega sigur til þess.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

Scheffelberg og liðsfélagi Abunadaga hugga hann

Mynd: Patrick Johnston/BlueSky

Abunada var niðurlútur í leikslok

Mynd: Patrick Johnston/BlueSky