Fotbolti.net
17.06.26 - 23:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Svo lengi sem ég er að standa mig fæ ég að halda sætinu"

Auglýsing
„Svo lengi sem ég er að standa mig fæ ég að halda sætinu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigur á FH í dag. Fótbolti.net ræddi við Guðnýju Geirsdóttir, markvörð ÍBV, eftir leikinn.

Guðný hefur setið á bekknum í þremur leikjum í sumar en hún hefur spilað síðustu þrjá leiki.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 2 FH
„Það er búið að vera mikið umtal um þessar skiptingar hjá okkur í markinu hvort þetta sé réttlætanlegt þótt við séum með jafn góða markmenn að skipta út. Svo lengi sem ég er að standa mig í mínu fæ ég að halda sætinu," sagði Guðný.

Kantmaðurinn Olga Sevcova spilaði stóran hluta í bakverðinum í dag. Hún fékk mikið hrós frá Guðnýju.

„Hún tók eiginlega bakvörðinn á sig í dag. Hún gerði það í einum leik í Lengjudeildinni í fyrra í rauninni upp á djókið. Hún er ótrúlega fljót, það er geggjað að hafa fljótan bakvörð."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.